Sundmót

Stefán Stefánsson

Sundmót

Kaupa Í körfu

SUND og meira sund var málið í Keflavík í síðustu viku þegar ÍRB hélt sitt árlega Sparisjóðsmót fyrir 12 ára og yngri í sundlauginni í Keflavík. Nóg var um að vera, keppt var í 37 greinum og riðlum auk boðsunds en eins og venjulega er líka gaman að hitta jafnaldra víða að. Boðsundið rak endahnútinn á mótið og var mikið fjör, hvort sem var í lauginni eða á bakkanum því þar hvatti hver sem betur gat. MYNDATEXTI: Sundfólk frá Ungmennafélaginu Þrótti frá Vogum mætti vígreift til leiks og lét sig ekki muna um myndatöku utanhúss. Frá vinstri eru Rebekka María, Hekla Eir, Sólrún Ósk, Jóhann Sævar, Guðmunda Birta, Sjöfn, Einar Óli, Berglind, Petra Ruth, María Jóna Jónsdóttir þjálfari, Kristjana, Eirþrúður, Thelma Rún, Elísabet Rós, Valgerður, Hákon Þór, Emilía Rós og Ágústa Margrét.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar