Sundmót

Stefán Stefánsson

Sundmót

Kaupa Í körfu

SUND og meira sund var málið í Keflavík í síðustu viku þegar ÍRB hélt sitt árlega Sparisjóðsmót fyrir 12 ára og yngri í sundlauginni í Keflavík. Nóg var um að vera, keppt var í 37 greinum og riðlum auk boðsunds en eins og venjulega er líka gaman að hitta jafnaldra víða að. Boðsundið rak endahnútinn á mótið og var mikið fjör, hvort sem var í lauginni eða á bakkanum því þar hvatti hver sem betur gat. MYNDATEXTI: Gunnar Örn Arnarson úr ÍRB, fyrir miðju, setti sveinamet í 100 metra bringusundi en það voru rúmlega 150 keppendur á Sparisjóðsmótinu. Félagar hans fögnuðu með honum í heita pottinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar