"Álfar eru með hvítt skegg"

Skapti Hallgrímsson

"Álfar eru með hvítt skegg"

Kaupa Í körfu

Verslunin Nettó styrkti verkefnið Bær í barnsaugum um 300 þúsund krónur í vikunni. Um er að ræða verkefni tíu leikskóla í bænum í samstarfi við Skóladeild Akureyrar og Skólaþróunarsvið Háskólans, sem felst m.a. í því að vekja athygli barna á umhverfi sínu. Sýning á verkum barnanna stendur nú yfir á Glerártorgi, og þar afhenti Sigmundur Sigurðsson, verslunarstjóri Nettó, styrkinn en Sigríður Síta Pétursdóttir, verkefnisstjóri á skólaþróunarsviði Háskólans á Akureyri veitti honum viðtöku, að viðstöddum fjölda leikskólabarna. Krakkarnir fengu allir ís, þar á meðal þessi strákur sem er líklega enginn álfur - en á spjaldinu fyrir ofan hann, sem er hluti af sýningu barnanna, stendur "Álfar eru með hvítt skegg", setning sem Egill Vagn, 5 ára og 10 mánaða, hefur skrifað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar