Sportbílar

Sportbílar

Kaupa Í körfu

Ég viðurkenni að ég er með bíladellu. Ég er bara svo heppinn að eiga góða konu sem sættir sig við þetta. Reyndar hefur hún gaman af því að keyra líka," segir Ingvar Örn Ingvarsson, sem eignaðist svartan Porsche 911 S, árgerð 1977, fyrir tveimur mánuðum. Ingvar segist hafa öruggar heimildir fyrir því að bíllinn hafi komið hingað til lands frá Þýskalandi árið 1986. "Þá var bíllinn rauður, en var fallega sítrónu-gulur þegar hann kom út úr verksmiðjunni á sínum tíma. Hann var líka mjórri í upphafi, en í kringum 1986 var sett á hann svokallað "verðbréfasala útlit" og hann breikkaður. Mig langar reyndar til að mjókka hann aftur og setja ný bretti á hann að aftan, en þá hverfa riflurnar og sílsarnir. Það eru hins vegar skiptar skoðanir um þessi áform mín og sumum finnst þetta hálfgerð goðgá. Ég verð því að eiga það við samvisku mína hvort ég læt mjókka hann," segir Ingvar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar