Anna Birta Tryggvadóttir

Anna Birta Tryggvadóttir

Kaupa Í körfu

Hvað ertu að fara að gera? Ég er að flytja til Grikklands með kærastanum mínum, á eyju sem heitir Siros. Við ætlum að vinna á hóteli fram í október og sjá svo til. Ég ólst upp í Grikklandi til átta ára aldurs, á grískan stjúpföður og tala grísku. Í rauninni er ég dálítið grísk í mér, svolítið brjáluð og opin. Komu úrslitin í keppninni um ungfrú Ísland þér á óvart? Nei, í rauninni ekki. Maður var búinn að velja sjálfur í huganum og það voru margar gullfallegar stelpur í keppninni. Ég er bara mjög ánægð með þessi úrslit. Sú sem vann er mjög sterkur karakter, mjög ákveðin og dugleg og örugg kona. Ég held að maður þurfi að hafa sterk bein til þess að þola svona titil.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar