Húsdýragarðurinn - Urtan Kobba

Jim Smart

Húsdýragarðurinn - Urtan Kobba

Kaupa Í körfu

Urtan Kobba kæpti þegar ljósmynda átti annan selkóp Tveir selkópar litu dagsins ljós í gær og fyrradag í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Mjög sjaldgæft er að selir komi í heiminn í dýragörðum en það hefur þó gerst á hverju ári síðustu 6-7 ár í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Að morgni sunnudags kæpti urtan Særún. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti erindi í garðinn um 11 í gærmorgun til að festa kópinn á mynd kom annar kópur í heiminn, í þetta sinn undan urtunni Kobbu....Selurinn Snorri er faðir beggja afkvæma. Kobba, Særún og Snorri voru fönguð á Rauðasandi árið 1991 og hafa dvalið í selalauginni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum síðan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar