Papco skiptir um eigendur

Þorkell Þorkelsson

Papco skiptir um eigendur

Kaupa Í körfu

Langholt kaupir fyrirtækið Papco í Reykjavík LANGHOLT ehf. sem er í eigu Þórðar, Ólafs og Alexanders Kárasona á Akureyri hefur samið um kaup á öllu hlutafé í fyrirtækinu Papco í Reykjavík af Rósu Valtýsdóttur og Baldri Baldurssyni. Þeir taka formlega við rekstrinum 1. júlí næstkomandi. "Þetta er stórt og vel rekið fyrirtæki og við hlökkum mikið til að takast á við þetta nýja verkefni," sagði Þórður. Þeir bræður hafa um árabil átt hlut í og verið í stjórnunarstöðum hjá prentsmiðjunni Ásprent á Akureyri, en létu af störfum þar fyrir nokkru. MYNDATEXTI: Nýju og gömlu eigendurnir: Ólafur, Alexander, Rósa Valtýsdóttir, Baldur Baldursson og Þórður Kárason.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar