Nýr bátur í Grímsey - Sómi 800

Helga Mattína Björnsdóttir

Nýr bátur í Grímsey - Sómi 800

Kaupa Í körfu

Draumur Einn af vaxtarbroddum í atvinnulífi Grímseyjar er ný útgerð. Hjónin Magnús Þór Bjarnason og Anna María Sigvaldadóttir stofnuðu nýlega Stertuna. Báturinn sem er Sómi 800, fékk nafnið Sædís EA 54. Sædís er kvótabátur keyptur af SM kvótaþingi og kvótinn leigður af sama fyrirtæki. Magnús Þór hefur verið sjómaður í nokkur ár en draumurinn um að verða eigin herra sem hefur alltaf blundað með honum er nú orðinn að veruleika með Sædísi. .....Á myndinni sjást hjónin Magnús Þór Bjarnason og Anna María Sigvaldadóttir á nýja bátinum, Sædísi EA 54, í Grímseyjarhöfn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar