Víkingaskipasafnið í Roskilde

Víkingaskipasafnið í Roskilde

Kaupa Í körfu

Rispur Víkingaskip í smíðum *Staðurinn | Hróarskelda Helgina 4. og 5. september verður mikið um dýrðir á víkingahátíð í Hróarskeldu í Danmörku. Hápunktur hátíðarinnar verður þegar stærsta langskipi heims, tæplega 30 metra að lengd verður hleypt af stokkunum frá nausti Víkingaskipasafnsins. Þegar smíði skipsins lýkur í haust er áætlað að það hafi tekið um 24.000 vinnustundir síðastliðin 4 ár og notað hafi verið timbur úr 14 metersþykkum eikartrjám. Að undanförnu hafa átta smiðir starfað við gerð skipsins. Fyrirmyndin eru leifar Skuldelev 2, stærsta skipsins á Víkingaskipasafninu sem var langskip til hernaðar og tók um 100 manns, þar af 60 undir árum. Seglið verður 118 m2 og í góðum byr er búist við að ná 20 hnúta hraða og halda í við gámaskipin á heimshöfunum. MYNDATEXTI: Bátanaustið: Átta smiðir eru í fullu starfi að gera eftirlíkingu af stærsta skipinu á Víkingaskipasafninu í Hróarskeldu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar