Barrn við tölvu

Jim Smart

Barrn við tölvu

Kaupa Í körfu

EITUREFNI Það er ekki bara sjónvarpsdagskráin sem getur skaðað börnin heldur líka sjónvarpstækin sjálf, samkvæmt skýrslu frá Alþjóðanáttúruverndarsjóðnum (WWF) sem vitnað er nýlega til á Nettavisen. Samkvæmt henni er ýmis eiturefni að finna í myndbandstækjum, sjónvarpstækjum, tölvum og barnabílstólum, sem geta haft óæskileg áhrif á þroska barna. Eldtefjandi efni sem innihalda bróm eru meðal þessara efna og geta þau leitt til lélegri hreyfiþroska og greindarvísitölu, skv. skýrslunni. MYNDATEXTI: Við tölvuna: Eldtefjandi efni sem innihalda bróm og bætt er í plast sem notað er í ýmis rafmagnstæki, geta haft óæskileg áhrif á þroska barna skv. skýrslu WWF.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar