Haukar - Vardar Skopje 34:33

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Haukar - Vardar Skopje 34:33

Kaupa Í körfu

Vörnin bilaði hjá Haukum ÞAÐ verður á brattann að sækja fyrir Íslandsmeistara Hauka að halda þriðja sætinu í B-riðli Meistaradeildarinnar í handknattleik eftir aðeins eins marks sigur, 34:33, á liði Vardar Skopje frá Makedóníu á Ásvöllum í gærkvöld. Haukar eiga eftir að sækja Vardar heim í þeirra ljónagryfju en sá leikur sker úr um hvort félagið hreppir þriðja sætið sem jafnframt gefur sæti í Evrópukeppni bikarhafa.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar