Haukar - Vardar Skopje 34:33

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Haukar - Vardar Skopje 34:33

Kaupa Í körfu

Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, var afar ósáttur í leikslok við framlag dómaranna frá Slóvakíu en hann hafði einnig ýmislegt út á lið sitt að setja. "Dómgæslan var hreint út sagt algjör katastrófa og það er óþolandi að horfa upp á svona hluti. Við fengum á okkur fjölda sóknarbrota sem voru alveg út í hött og svo héngu þeir á boltanum í margar mínútur án þess að ógna okkar marki en aldrei kom höndin upp hjá dómurunum," sagði Viggó við Morgunblaðið eftir leikinn. ( ÞAÐ verður á brattann að sækja fyrir Íslandsmeistara Hauka að halda þriðja sætinu í B-riðli Meistaradeildarinnar í handknattleik eftir aðeins eins marks sigur, 34:33, á liði Vardar Skopje frá Makedóníu á Ásvöllum í gærkvöld. )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar