Hluthafafundur Norðurljósa

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Hluthafafundur Norðurljósa

Kaupa Í körfu

NÝ stjórn var kjörin á hluthafafundi hjá Norðurljósum samskiptafélagi hf. í gær. Stjórnina skipa sem fyrr Sigurjón Sighvatsson og Sigurður G. Guðjónsson en nýir í stjórn eru lögmennirnir Ragnar H. Hall hrl., sem er formaður stjórnar, Gunnar Jónsson hrl. og Hörður Felix Harðarson hrl. Allir þrír eru frá Lögmönnum Mörkinni ehf. og hafa þeir sinnt lögmannsstörfum fyrir Norðurljós. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er hér um bráðabirgðastjórn að ræða sem ætlað er að undirbúa hlutafjáraukningu í félaginu. Þess er vænst að tillaga þess efnis verði lögð fyrir hluthafafund á næstunni. MYNDATEXTI: Jón Ólafsson sat í gær sinn síðasta stjórnarfund hjá Norðurljósum. Sigurður G. Guðjónsson og Sigurjón Sighvatsson sitja áfram í stjórn félagsins. Myndin var tekin á hluthafafundi í kjölfar fundar fráfarandi stjórnar. mynd kom ekki ( Hluthafafundur Nordurljósa Stöðvar 2 Lynghálsi )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar