Útskrift MSS - Guðbjörg og Hörður

Svanhildur Eiríksdóttir

Útskrift MSS - Guðbjörg og Hörður

Kaupa Í körfu

Langþráður draumur verður að veruleika hjá fyrstu fjarnemunum sem útskrifast hjá Miðstöð símenntunar "Við verðum auðþekkjanleg á brosinu. Ætli við eigum ekki eftir að spóka okkur um með fjölskyldunni í skrúðgarðinum með bros allan hringinn," sögðu Guðbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og Hörður Hilmarsson viðskiptafræðingur en þau eru í hópi fyrstu útskriftarnema í fjarkennslu í gegnum Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS). MYNDATEXTI: Langri törn lokið: Guðbjörg Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og Hörður Hilmarsson viðskiptafræðingur eru í hópi fyrstu útskriftarnema í fjarkennslu í gegnum MSS. Námið er stundað við Háskólann á Akureyri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar