Njarðvík-Haukar 76:69

Jim Smart

Njarðvík-Haukar 76:69

Kaupa Í körfu

Logi og Brenton óstöðvandi REFSING fyrir mistök þegar við Njarðvíkinga er að etja er hörð eins og Haukar sannreyndu í heimsókn sinni suður með sjó í gærkvöldi. Með Loga Gunnarsson og Brenton Birmingham í broddi fylkingar náðu Njarðvíkingar með þriggja stiga skothríð, án þess að Haukar fengju rönd við reist, öruggri forystu sem þeir héldu út leikinn, sem lauk með 76:69-sigri. Þar með eru Njarðvíkingar komnir upp í annað sæti deildarinnar eftir slaka byrjun í mótinu. MYNDATEXTI: Brenton Birmingham setti 28 stig fyrir Njarðvíkinga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar