Klamedía X

Jón Svavarsson

Klamedía X

Kaupa Í körfu

ALLIR sem vettlingi geta valdið og hafa gaman af hressilegri, nýrri, íslenskri tónlist ættu að mæta á Gauk á Stöng í kvöld. Þar mun hljómsveitin Klamedía X, sem á vordögum gaf út breiðskífuna Pilsner fyrir kónginn, skemmta gestum sem spila stóran þátt á þessu merka kvöldi því tónleikarnir verða hljóðritaðir. "Við ætlum að spila fullt af nýjum lögum af næstu plötu sem við byrjum bráðlega að taka upp," segir Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari sveitarinnar. "En auðvitað tökum við líka nokkur eldri lög." MYNDATEXTI: Klamedía X leikur nýtt efni í bland við eldra á Gauknum í kvöld. Nú heitir hljómsveitin Kalk

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar