Snjór

Jónas Erlendsson Fagradal

Snjór

Kaupa Í körfu

Mikið fannfergi hefur verið á Suðurlandi undanfarið og var varað við hengjum sem fallið gætu úr snjóþungum hlíðum um helgina. Þá festust bílar víða í snjósköflum vegna slæmrar færðar. Annars staðar þurfti síðan að moka bíla lausa vegna mikillar snjókomu líkt og á Giljum á Mýrdal þar sem lagið yfir bílnum var á þriðja metra þegar þegar það var sem hæst. Snjórinn hylur þó fleira en bílinn því rétt sést grilla í tveggja hæða hús hinum megin við skaflinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar