Smirnoff - keppnin

Halldór Kolbeins

Smirnoff - keppnin

Kaupa Í körfu

Smirnoff fatahönnunarkeppnin fór fram á plani Þjóðskjalasafns Íslands á laugardagskvöldið. Þar sýndu 13 ungir fatahönnuðir sköpunarverk sín undir yfirskriftinni "sýndarnáttúra" og gaf meðal annars að líta blóm, hraun, mosa, þyngdaraflsleysi og kvenlíkama búin til úr alls kyns nýstárlegum efnum og nýttu hönnuðirnir sér margir hverjir tæknilegar aðferðir til verka sinna. Dómnefndina skipuðu Benjamin Arthur Westwood ljósmyndari og sonur hins heimsfræga fatahönnuðar Vivian Westwood, Ragnheiður Jónsdóttir sigurvegari keppninnar í fyrra og Antonio Vinciguerra sem rekur Lundúnaútibú fyrirsætuumboðsskrifstofunnar Next.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar