Smirnoff - keppnin

Halldór Kolbeins

Smirnoff - keppnin

Kaupa Í körfu

Smirnoff fatahönnunarkeppnin fór fram á plani Þjóðskjalasafns Íslands á laugardagskvöldið. Þar sýndu 13 ungir fatahönnuðir sköpunarverk sín undir yfirskriftinni "sýndarnáttúra" og gaf meðal annars að líta blóm, hraun, mosa, þyngdaraflsleysi og kvenlíkama búin til úr alls kyns nýstárlegum efnum og nýttu hönnuðirnir sér margir hverjir tæknilegar aðferðir til verka sinna. Sigurflíkin var kápa úr þæfðri ull og bar hugmyndin heitið "Reyfi". Dómararnir voru sérstaklega hrifnir af efninu og vinnslu þess og sögðu að það væri skemmtilegt að framlag Íslands í lokakeppninni yrði flík sem væri svona "íslensk". Hönnuður er Kristína Róbertsdóttir Berman og fyrirsætan Jóhanna Ríkhardsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar