Eldborg við Bláa lónið

Gísli Sigurðsson

Eldborg við Bláa lónið

Kaupa Í körfu

ARKITEKTÚR - UMHVERFI ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ OG MARGMIÐLUN JARÐFRÆÐIUPPLÝSINGA Allir þekkja Bláa lónið sem nú er ásamt með Geysi og Gullfossi fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Ekki er hins vegar víst að allir þekki þá sögu, að upprunalega Bláa lónið varð til í tengslum við orkuver Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi, sem er undarlegt örnefni þar sem ekkert er að sjá annað en úfið Illahraunið. Það rann á Sturlungaöld og er líklega yngsta jarðmyndun á Reykjanesskaga. Tilkomumiklir og myndrænir gufubólstrar minna vegfarendur á þessum slóðum á orkuverið, en fæstir vita að þar er eitthvað annað og meira. Fólk kemur af fjöllum þegar minnst er á Eldborg, þjónustumiðstöð og miðlun jarðfræðiþekkingar, sem þar hefur risið af metnaði og glæsibrag, enda segja sumir í gamni að þetta sé bezt varðveitta leyndarmálið á Suðurnesjum. Með þessu greinarkorni og myndunum sem fylgja. MYNDATEXTI: Setustofa starfsmanna og gesta. Við hlið hennar eru nokkur gistiherbergi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar