KR - Víkingur 2:1

Árni Torfason

KR - Víkingur 2:1

Kaupa Í körfu

ÞAÐ var þungu fargi af mörgum létt í Vesturbænum í gærkvöld eftir að Íslandsmeistarar KR höfðu herjað út sín fyrstu stig í úrvalsdeildinni í ár. Þau voru harðsótt, gegn baráttuglöðum nýliðum Víkings sem voru síst lakari aðilinn í leiknum en máttu játa sig sigraða í þriðja sinn í jafnmörgum leikjum. KR-ingar voru langt frá því að sýna einhverja meistaratakta, en þeir náðu í stigin þrjú sem öllu máli skiptu á þessu stigi málsins - unnu 2:1. MYNDATEXTI: KR-ingurinn Arnar Jón Sigurgeirsson horfir á eftir knettinum á leið í Víkingsmarkið er hann skoraði sigurmark Íslandsmeistaranna gegn nýliðunum sem eru enn án stiga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar