Veitinga- og verslunarhús í byggingu

Árni Torfason

Veitinga- og verslunarhús í byggingu

Kaupa Í körfu

Á áberandi stað við hin mislægu gatnamót Grafarvogs og Grafarholts er risið 3.600 ferm. hús. Þar er að verki byggingarfyrirtækið Gullhamrar, en húsið stendur við Þjóðhildarstíg 2. Það er sérhannað fyrir veitingarekstur og verzlunarstarfsemi. Á jarðhæð hefur Kaupás, sem m. a. rekur Nóatún, tekið á leigu 1.200 ferm. húsnæði undir verzlun, en 2.400 ferm. verða notaðir fyrir skemmtistað og veitingahús. MYNDATEXTI: Húsið er byggt í boga og er á tveimur hæðum. Það er um 3.600 ferm alls. Á neðri hæðinni verður opnuð Nóatúnsverzlun innan skamms í 1.200 ferm. húsnæði, en á efri hæð verður skemmti- og veitingastaður og húsnæðið þar er sérhannað sem slíkt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar