5 milljónasta plantan

Margret Ísaksdóttir

5 milljónasta plantan

Kaupa Í körfu

FIMMTA milljónasta plantan var gróðursett í nafni Suðurlandsskóga í sól og blíðu í gær í landi Hraunskóga ehf. sem er í eigu Þórhildar Ólafsdóttur og Hrafnkels Karlssonar. Samningur Suðurlandsskóga við Hraunskóga ehf. kveður á um að planta alls í 124 hektara lands. Alls á að planta 170 þúsund plöntum, aðallega stafafuru, birki, sitkagreni, elri og lerki. MYNDTEXTI: Hrafnkell Karlsson og Þórhildur Ólafsdóttir búin að planta birkinu. Á milli þeirra er Björn B. Jónsson, framkvæmdastjóri Suðurlandsskóga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar