Baldur Ágústsson

Jim Smart

Baldur Ágústsson

Kaupa Í körfu

EKKI missa af... ...frambjóðanda í 70 mínútum FORSETAKOSNINGAR eru á næsta leiti, nánar tiltekið á laugardaginn, og þetta árið eru frambjóðendur þrír. Einn þeirra, Baldur Ágústsson, gerir sér lítið fyrir í kvöld og ætlar að mæta í heimsókn til æringjanna og sprelligosanna í 70 mínútum. Baldur mun þar sitja fyrir svörum og gera grein fyrir áherslum sínum og stefnumálum og án efa munu þeir 70-mínútna-drengir gera sitt besta til að grilla dálítið í Baldri á kersknislegan hátt. Við því má búast að ógeðsdrykkurinn verði fram borinn með pomp og prakt og Baldri verður örugglega gert að gangast undir einhverja áskorunina. Þáttastjórnendur skora á þá Ólaf Ragnar Grímsson og Ástþór Magnússon að láta nú sjá sig á lokasprettinum fyrir kjördag. MYNDATEXTI: Baldur Ágústsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar