Hvað er með ásum og Goya

Hvað er með ásum og Goya

Kaupa Í körfu

Laxamýri | Uppstækkanir á andlitum fávisku, hégóma og drambsemi, djöfla og púka úr myndaröðinni Kenjarnar hafa verið til sýnis í hvelfingu Laxárstöðvar síðustu vikur. Þetta er gert í samvinnu Landsvirkjunar og Listasafnsins á Akureyri. Myndirnar vekja óneitanlega athygli en í bæklingi, sem sýningargestir fá um Francisco de Goya (1746-1828), segir að grafíklistaverk hans séu meðal merkustu atburða í svartlistasögu heimsins. Sagt er að hann hafi náð einstöku valdi á verkfærum sínum og á því að samnýta ólíkar aðferðir á fullkominn hátt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar