Pollamót Þórs á Akureyri

Skapti Hallgrímsson

Pollamót Þórs á Akureyri

Kaupa Í körfu

Knattspyrnukappinn Hermann Hreiðarsson var meðal áhorfenda á Pollamóti Þórs á Akureyri um helgina, þar sem eiginkona hans, Ragna Lóa Stefánsdóttir, var á meðal keppenda með liði KR. Hermann brá á leik með nokkrum börnum á litlum fótboltavelli á leiksvæðinu við Hamar þegar færi gafst, og ungviðið sló ekki hendinni á móti slíku tækifæri; að fá að kljást við alvöru hetju, landsliðsmann og atvinnumann í faginu. Hermann var auðvitað einn á móti öllum hinum og gripið var til ýmissa ráða til þess að hafa betur í viðureigninni við landsliðsmanninn og atvinnumanninn með Charlton í Englandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar