Þórisstaðavatn

Helgi Bjarnason

Þórisstaðavatn

Kaupa Í körfu

Ævintýri MIKIÐ gekk á við Þórisstaðavatn í Borgarfirði um helgina. Fjöldi fjórhjóla var á ferðinni allan laugardaginn með starfsmenn Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga og fjölskyldur þeirra sem héldu fjölskyldudag. Gusurnar gengu undan hjólunum þegar ekið var eftir ánni sem rennur út í vatnið. Starfsfólk Eskimos ævintýrasmiðju ehf. skipulagði fjölskyldudaginn. Á svæðinu voru ýmis önnur leiktæki, jafnt á láði sem legi, og dagskrá allan daginn. Virtust gestir njóta lífsins þrátt fyrir skúraveður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar