Bjalla og Fame

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Bjalla og Fame

Kaupa Í körfu

Söngleikur | Þeir sem setja vilja upp alvöru sumarsöngleik þurfa sannarlega í mörg horn að líta. Nýbakaður Grímuverðlaunahafi, Björn Thors, lætur sér ekki nægja að framleiða sýninguna heldur valdi Rúnar Freyr Gíslason leikstjóri hann til að fara með eitt af helstu hlutverkum í sýningunni. Það er því nóg að gera hjá Birni. Á föstudaginn kom framkvæmdastjórinn t.a.m. að framkvæmdum í Austurbæ þegar gömul og verðmæt Bjalla - sjaldgæft hálfrar aldar gamalt eintak í sinni upprunalegu mynd - var hífð með krana upp á skýlið á gamla góða Austurbæ, þar sem hún mun standa í kynningarskyni fyrir söngleikinn meðan á sýningum stendur en þessi sívinsæli söngleikur verður frumsýndur með tilþrifum næsta föstudag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar