Bókmenntaganga Kristín og Úlfhildur

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Bókmenntaganga Kristín og Úlfhildur

Kaupa Í körfu

Bókmenntir |Borgarbókasafn Reykjavíkur býður borgarbúum og öðrum gestum í bókmenntagöngu á listrænum laugardegi. Safnast verður saman í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 kl. 14 og gengið þaðan um miðbæinn með viðkomu á völdum stöðum. Síðasti viðkomustaðurinn verður Hressó í Austurstræti og þátttakendur geta þá hvílt lúin bein að lokinni göngu. Athygli verður beint að ljóðum og sögum eftir íslenskar konur og þeirri ólíku miðbæjarstemmningu, sjálfsmynd og upplifun sem lesa má í textum skáldkvennanna. Leiðsögukonur eru þær Jónína Óskarsdóttir og Úlfhildur Dagsdóttir. Einnig munu einhverjar skáldkvennanna lesa fyrir hópinn. Gangan tekur um eina og hálfa klukkustund og karlar eru að sjálfsögðu velkomnir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar