Dr. Haraldur Páll Gunnlaugsson

Árni Torfason

Dr. Haraldur Páll Gunnlaugsson

Kaupa Í körfu

Dr. Haraldur Páll Gunnlaugsson rannsakar jarðveg og lífverur á Mars VÍSINDAMENN við háskólann í Árósum hafa sett upp hermi sem líkir eftir aðstæðum á Mars á rannsóknarstofu sinni og nota hann til að rannsaka jarðveg og hvort líf sé að finna á reikistjörnunni. Dr. Haraldur Páll Gunnlaugsson, lektor í eðlisfræði við Árósaháskóla, er meðal þeirra vísindamanna sem vinna að verkefninu en hann er staddur hér á landi vegna ráðstefnunnar um byggilega hnetti. Haraldur vann með öðrum að hönnun segulbúnaðar sem settur var á rannsóknarjeppana Spirit og Opportunity, sem sendir voru til Mars í janúar á þessu ári. Segulbúnaðurinn hefur þann tilgang að taka upp ryk úr andrúmsloftinu á Mars og greina það með litrófsgreiningum og efnagreiningum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar