Cafe Margret

Steinunn Ásmundsdóttir

Cafe Margret

Kaupa Í körfu

Þau heita Margret Müller-Pupkes og Horst Müller og seldu allar eigur sínar í Þýskalandi til að flytja til Íslands og byggja þar gisti- og veitingahús yst í Breiðdalnum. Steinunn Ásmundsdóttir spurði þau yfir kaffibolla hvað fengi fólk til að gera slíkt og þvílíkt. Margret og Horst standa vaktina 16 tíma á sólarhring í Cafe Margret, sem stendur um 800 metra norðaustan við afleggjarann inn á Breiðdalsvík. Húsið er byggt úr timbri og háreist, með miklum gluggum og útsýn frá því víð um láð og lög. Forn þýsk húsgögn prýða húsið hátt og lágt og allt handbragð ber natni fagurkera og hagleik vitni. MYNDATEXTI:

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar