Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson funda

Sverrir Vilhelmsson

Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson funda

Kaupa Í körfu

"VIÐ leysum þetta mál eins og við erum vanir að leysa mál," sagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra eftir fund með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í Stjórnarráðinu í gær. Þar ræddu forystumenn ríkisstjórnarinnar stöðu fjölmiðlafrumvarpsins, sem er til meðferðar í allsherjarnefnd Alþingis og bíður þar afgreiðslu. Í máli þeirra eftir fundinn kom fram að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um breytingar á frumvarpinu né hvort það yrði dregið til baka. Verið væri að vinna að málinu innan allsherjarnefndar sem kæmi væntanlega ekki saman fyrr en eftir helgina. Þá væri hægt að afgreiða það til Alþingis. Davíð taldi þingmeirihluta fyrir frumvarpinu eins og það væri núna. MYNDATEXTI: "Ég hef engar áhyggjur af málinu," sagði Davíð Oddsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar