Lögreglan í Reykjavík

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Lögreglan í Reykjavík

Kaupa Í körfu

TUTTUGU og fjórir bíllyklar að jafnmörgum bílum fundust á manni sem lögreglan í Reykjavík handtók í gær vegna gruns um þjófnað. Handtaka mannsins, sem hefur nokkrum sinnum áður komið við sögu lögreglu, tengdist öðru máli en lögreglan fann lyklana við leit á manninum. Samkvæmt upplýsingum frá aðalvarðstjóra lögreglunnar í Reykjavík er ekki enn vitað hvernig maðurinn notaði lyklana og hvort þeir hafa verið notaðir til innbrota í bifreiðir en yfirheyrslur yfir manninum fóru fram síðdegis í gær. Aðalvarðstjóri mundi ekki eftir því að lögreglan hefði fundið annað eins magn af bíllyklum á einum og sama manninum. MYNDATEXTI: Lögreglumennirnir Ríkharður Örn Steingrímsson og Karl Arnarson (til hægri) eru með lyklana 24 sem fundust í fórum mannsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar