Göngugarpar

Skapti Hallgrímsson

Göngugarpar

Kaupa Í körfu

Gengu frá Reykjavík til Akureyrar á sjö og hálfum degi. "ÞETTA hefur gengið svona upp og niður," sögðu þeir félagar Pálmi Hreiðarsson og Guðmundur Jörundsson, en þeir komu til Akureyrar síðdegis á föstudag eftir að hafa gengið frá Reykjavík. Þeir lögðu af stað á föstudegi í síðastliðinni viku, en tilgangur göngunnar var að safna fé fyrir Atvinnu með stuðningi og Handverkstæðið Ásgarð. MYNDATEXTI: Glaðir en þreyttir. Félagarnir Pálmi Hreiðarsson t.v. og Guðmundur Jörundsson á Moldhaugnahálsi fyrir lokasprettinn til Akureyrar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar