Árni Jónsson

Jim Smart

Árni Jónsson

Kaupa Í körfu

Árni Jónsson var sæmdur franskri heiðursorðu á dögunum en hann er að hefja sitt tíunda ár sem forseti Alliance Francaise á Íslandi. Alliance Francaise hefur verið starfrækt á Íslandi síðan 1911 en samtökin standa fyrir frönskukennslu og ýmsum menningarviðburðum. Árni vinnur störf sín í sjálfboðavinnu en hann segist hafa áhuga á að koma í gang vinnu að útgáfu bókar um starfsemi samtakanna á Íslandi sem kæmi út á hundrað ára afmæli þeirra. Það var sendiherra Frakklands á Íslandi, Louis Bardollet, sem veitti orðuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar