Hárið

Árni Torfason

Hárið

Kaupa Í körfu

Hárið vex á Tónlistanum þessa vikuna og hoppar upp um 53 sæti, úr því 57. í það fjórða, hvorki meira né minna. Geri aðrir líkamshlutar betur! Eins og flestir vita er Hárið sýnt í Austurbæ þessa dagana, við afar góðar undirtektir gesta, sem undantekningarlítið mæla með verkinu. Að öðrum ólöstuðum þykir Sverrir Bergmann fara á kostum í söng sínum, en hann syngur m.a. fyrsta lagið, Að eilífu, af miklum krafti og öryggi. Sverrir er að sjálfsögðu loðinn vel, eins og vera ber í sýningu af þessu taginu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar