Klink og Bank

Klink og Bank

Kaupa Í körfu

Um 140 listamenn starfa í Klink og Bank sem ku vera bæði fljótandi og lífrænt hús Taktföst raftónlist hljómar úr einu herberginu og í loftinu er einhver iðandi stemning. Menn með gítara og trommukjuða mæta hver öðrum á dökkmáluðum og heldur þröngum ganginum og þegar litið er inn um opnar gáttir sjást mixerar, magnarar, lyklaborð og tölvuskjáir - tækjaflóra sem virðist svo flókin að maður ímyndar sér að það þurfi háskólapróf til að stjórna henni. Við erum stödd í Klink og Bank-listamannasamsteypunni, sem rekin er í gamla Hampiðjuhúsinu við Brautarholt, nánar tiltekið í þeirri álmu sem kölluð er Rokkland. "Þetta er sá hluti hússins sem hljómsveitir og tónlistarmenn halda til í," útskýrir Nína Magnúsdóttir, hússtýra Klink og Bank. "Vegna allra tækjanna er þetta vel varið rými auk þess sem hljómsveitirnar hafa hljóðeinangrað sínar vinnustofur." Alls starfar 61 tónlistarmaður í húsinu í a.m.k. tíu verkefnum en heildarfjöldi listamanna er þó miklu meiri. "Síðast þegar við töldum voru 138 listamenn í húsinu en ég myndi halda að ef við færum að telja aftur værum við orðin rúmlega 140. MYNDATEXTI: Alltaf þegar eitthvað er að gerast tekur einhver í húsinu að sér að dokumentera það á videó, með ljósmyndum eða með því að skrifa það niður. Á skrifstofu Godds, Guðmundar Odds Magnússonar, er efninu safnað saman. Hér er hann ásamt Sirru eða Sigrúnu Sigurðardóttur. "Við dokumenterum meira að segja dokumentasjónina," kallar einhver út úr skrifstofunni og bendir síðan glottandi á okkur blaðmanninn og ljósmyndarann. "Við verðum að fá mynd af þeim!"

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar