Dómkirkjan í Reykjavík

Árni Torfason

Dómkirkjan í Reykjavík

Kaupa Í körfu

Verða notaðir við innsetningu forseta DÓMKIRKJAN hefur fengið að gjöf tvo viðhafnarstóla til nota við sérstök hátíðartækifæri en gefendur eru hjónin Margaret og Bent Scheving Thorsteinsson. Að sögn Hjálmars Jónssonar Dómkirkjuprests verða stólarnir notaðir í fyrsta sinn hinn 1. ágúst nk. við innsetningu forseta Íslands í embætti. Bent var formaður sóknarnefndar kirkjunnar um árabil og hafa þau hjón áður fært kirkjunni að gjöf fjóra brúðkaupsstóla í sama stíl og biskupsstól. Hönnun og smíði stólanna var í höndum Stefáns Snæbjörnssonar arkitekts, Kristjáns Kristjánssonar trésmíðameistara og Egils Ásgrímssonar bólstrara.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar