Útskriftarathöfn Snorraverkefnisins

Jim Smart

Útskriftarathöfn Snorraverkefnisins

Kaupa Í körfu

SNORRAVERKEFNINU lauk með útskriftarathöfn á föstudag en fimmtán ungir Vestur-Íslendingar frá Kanada og Bandaríkjunum hafa dvalið hérlendis í fimm vikur. Verkefnið er samstarf Norræna félagsins og Þjóðræknifélags Íslendinga og hefur þann tilgang að hvetja unga Vestur-Íslendinga til að varðveita og rækta íslenskan menningar- og þjóðararf sinn. Þátttakendur skoðuðu helstu náttúruperlur Íslands, heimsóttu ættingja sína hérlendis og tóku þátt í þriggja vikna starfsþjálfun. Nú hafa samtals 75 manns tekið þátt í verkefninu hér á landi á sex árum. Í ágúst hefst svo verkefnið Snorri-plús en það er hugsað fyrir Vestur-Íslendinga sem eru þrjátíu ára og eldri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar