Tjaldstæði á Akureyri

Margrét Þóra Þórsdóttir

Tjaldstæði á Akureyri

Kaupa Í körfu

Fjöldi gesta var kominn til Akureyrar í gær, en nú um helgina verður þar í fjórða sinn haldin fjölskylduhátíðin Ein með öllu. "Við gerum fastlega ráð fyrir miklum fjölda fólks í bænum um helgina," sagði Bragi Bergmann talsmaður Vina Akureyrar sem standa fyrir hátíðinni. Á liðnu ári taldist mönnum til að um 12 til 14 þúsund manns hefðu tekið þátt í hátíðarhöldum um verslunarmannahelgina og átti Bragi allt eins von á að þeir yrðu fleiri í ár. "Bæði er að dagskráin er enn öflugri en í fyrra og þá leika veðurguðirnir við okkur Norðlendinga og spáin er okkur mjög hagstæð." MYNDATEXTI: Fjöldi gesta er á tjaldstæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar