Forseti Íslands settur i embætti

Jim Smart

Forseti Íslands settur i embætti

Kaupa Í körfu

Gestir við innsetningu forseta Íslands voru helstu embættismenn þjóðarinnar, handhafar forsetavalds, hæstaréttardómarar, ráðherrar, alþingismenn, fyrrverandi forseti, nokkrir forstöðumenn ríkisstofnana, fulltrúar kirkjunnar, sveitarfélaga, félagasamtaka og atvinnulífsins, sendimenn erlendra ríkja og fleiri. Alþingi, ríkisstjórn og Hæstiréttur Íslands bjóða sameiginlega til athafnarinnar og í boðskorti eru leiðbeiningar um klæðnað þar sem segir að menn skuli vera í kjólfötum og bera orður. Stefán L. Stefánsson forsetaritari segir að þessar óskir séu samkvæmt áratuga hefð og engin breyting hafi orðið á henni nú. MYNDATEXTI: Það var þétt setinn bekkurinn í Alþingishúsinu við innsetningarathöfnina. Ofarlega á myndinni sjást dætur forsetans, þær Dalla og Tinna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar