Bílslys við Kotströnd

Margrét Ísaksdóttir

Bílslys við Kotströnd

Kaupa Í körfu

Aðkoman að bílslysinu á Suðurlandsvegi var mjög slæm. TVENNT slasaðist alvarlega í árekstri á Suðurlandsvegi við Kotstrandarkirkju á fjórða tímanum í gær. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíl, sem í voru hjón á sjötugsaldri, var ekið eftir röngum vegarhelmingi í suðurátt og lenti hann á jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. Að sögn lögreglunnar á Selfossi barst tilkynning um slysið klukkan 15:48 og þurfti að stöðva umferð á Suðurlandsvegi í um tvær klukkustundir meðan unnið var að því að klippa hin slösuðu úr fólksbifreiðinni. Lögreglan telur ekki að um framúrakstur hafi verið að ræða, ekki hafi verið aðstæður til þess, að sögn hennar. Talið er að bílarnir hafi báðir verið á um 80-90 kílómetra hraða. Karl og kona á fimmtugsaldri, sem voru í jeppanum, slösuðust lítilsháttar. Kalla þurfti á þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja konuna sem var í fólksbílnum til Reykjavíkur, á Landspítalann. Konan var tengd við öndunarvél og í aðgerð þegar Morgunblaðið spurðist fyrir um líðan hennar í gærkvöldi. Maðurinn í fólksbílnum var fluttur landleiðina með sjúkrabíl, að sögn lögreglu, og var á gjörgæslu til eftirlits, að sögn vakthafandi læknis á sjúkrahúsinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar