Kárahnjúkar

Brynjar Gauti

Kárahnjúkar

Kaupa Í körfu

Flóðið í Jökulsá á Dal, Jöklu, jókst á ný síðdegis í gær og fram á kvöld. Vatnsborðið fór hæst í rúma 479 metra yfir sjó sem er einum og hálfum metra hærra en í fyrrakvöld þegar nokkrar skemmdir urðu á brúnni á vinnusvæðinu, og er flóðið náði hámarki í gærkvöldi var brúin komin á bólakaf, aðeins glitti í umferðarskilti við hana. MYNDATEXTI: Fyrir nokkrum vikum var þetta útsýnið úr lofti yfir Jöklu þar sem hún fer inn í hjáveitugöngin tvö. Önnur göngin, þau til hægri á myndinni, hafa ekki annað vatnsflóðinu síðustu daga og hækka hefur þurft varnarstífluna við hlið ganganna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar