Bæjarlífið

Líney Sigurðardóttir

Bæjarlífið

Kaupa Í körfu

ÞÓRSHÖFN - EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR FRÉTTARITARA Töluverð breyting | hefur orðið á hafnarsvæðinu á Þórshöfn en þar hafa miklar endurbætur staðið yfir og er enn ekki lokið. Fyrir smábátana munar mikið um nýja upptökubraut sem er senn tilbúin en aðeins smávægileg vinna er eftir við hana. Nú er unnið við að ganga frá lögnum og steypa þekju á nýjan stálþilskant en á næsta ári er stefnt að lokum framkvæmda og verður þá m.a. loðnulöndunarkanturinn endurbyggður. Öll hafnaraðstaða mun þá gerbreytast og viðlegu- og athafnarými stækka til muna eftir að endurbótum lýkur. MYNDATEXTI: Nýja upptökubrautin við höfnina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar