Útimarkaður

Jim Smart

Útimarkaður

Kaupa Í körfu

ÚTIMARKAÐUR Íbúar í Langholtshverfi, Vogahverfi og Laugarneshverfi selja kompudót Harmonikuleikari ætlar að spila fyrir gesti útimarkaðarins, börn úr skólagörðunum hafa ákveðið að selja hluta af uppskerunni, fólk ætlar að koma með dót úr geymslunni og selja og Þróttarar ætla að selja gestum og gangandi kaffi og meðlæti: Þetta er hluti af því sem verður í boði á útimarkaðnum sem í fyrsta sinn á að halda á svæðinu fyrir neðan Langholtsskóla á morgun, laugardag, frá klukkan 11 til 16. Marta Sævarsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir eiga börn í sama bekk og eru bekkjarfulltrúar. Þær ásamt Kristínu Þorleifsdóttur fengu þá hugmynd að í Laugardalshverfunum verði með reglulegum hætti haldnir útimarkaðir íbúum til gagns og gamans. "Nú höfum við tekið höndum saman við að hrinda hugmyndinni í framkvæmd með stuðningi og velvilja frá hverfaráði Laugardals. Stofnaður hefur verið áhugamannahópur til að halda utan um framkvæmdina með fulltrúum úr skólahverfunum þremur sem umlykja Laugardalinnn." MYNDATEXTI: Tvíburabræður: Steinn Völundur og Ólafur Elliði Halldórssynir með ljósakrónur sem verða til sölu á útimarkaðnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar