Ólafur Stefánsson

Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Ólafur Stefánsson

Kaupa Í körfu

Ólafur Stefánsson segir að andlegi þátturinn hafi mikið að segja þegar út í erfiða keppni er komið í Aþenu "ÞETTA snýst fyrst og fremst um að andlegi þátturinn sé sterkur hjá okkur hérna í Aþenu. Við séum einbeittir á okkar markmið og höfum trú á því að við séum góð handboltaþjóð og getum unnið alla, eins og við stefnum ávallt á," sagði Ólafur Stefánsson, lykilmaður íslenska landsliðsins, í samtali við Morgunblaðið, en hann verður í eldlínunni gegn Króötum í fyrstu umferð handknattleikskeppninnar á Ólympíuleikunum í dag. MYNDATEXTI: Ólafur Stefánsson, lykilmaður íslenska liðsins, í handknattleikshöllinni í Aþenu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar