Akureyri

Margrét Þóra Þórsdóttir

Akureyri

Kaupa Í körfu

ÞAÐ var allt á útopnu í nýja fjölbýlishúsinu við Tröllagil í blíðviðrinu í gærdag og léttklæddir iðnaðarmenn af öllu tagi á hlaupum um bygginguna sem alls er á níu hæðum. Enda alveg að bresta á að það verði tekið í notkun. Félagsstofnun stúdenta á Akureyri hafði forgöngu um að reisa húsið, en þar verður leikskóli rekin á neðstu hæðum og íbúðir leigðar út til stúdenta við Háskólann á Akureyri á hæðunum þar fyrir ofan. Leikskólinn Tröllagil verður starfandi á tveimur neðstu hæðum hússins og er allt að verða klárt fyrir komu barnanna, lokasprettur lóðaframkvæmda stóð yfir í gær og von á leiktækjum í dag. MYNDATEXTI: Framkvæmdir eru í fullum gangi við lóð nýja leikskólans í Tröllagili.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar