Ísland - Ítalía 2:0

Brynjar Gauti

Ísland - Ítalía 2:0

Kaupa Í körfu

Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari var gríðarlega ánægður með leik íslenska liðsins gegn Ítölum í gær og þá sérstaklega ákefðina og samvinnuna sem var til staðar frá upphafi til enda. Ásgeir telur að samkeppni um stöðurnar í íslenska liðinu hafi aldrei áður verið eins hörð og telur Ásgeir að slík staða sé mjög ákjósanleg fyrir komandi verkefni í undankeppni heimsmeistaramótsins í haust. MYNDATEXTI: Aðsóknarmet var sett í gær á Laugardalsvelli og hér fagna íslensku leikmennirnir áhorfendum fyrir stuðninginn, en alls mættu 20.204 á leikinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar