Pétur Blöndal

Jim Smart

Pétur Blöndal

Kaupa Í körfu

PÉTUR Blöndal alþingismaður var í gær valinn "tík ársins" af ritstjórn vefritsins Tíkarinnar en tveggja ára afmæli þess var fagnað í gær. "Hann var valinn vegna þess að hann er jafnréttissinni og hefur barist fyrir jafnrétti í mörg ár," sagði Guðrún Inga Ingólfsdóttir sem situr í ritstjórn Tíkarinnar. Frá því Pétur tók sæti á Alþingi hafi hann alla tíð talað fyrir jöfnum rétti kynjanna og verið meðal þeirra fyrstu sem bentu á mikilvægi fæðingaorlofs. "Hann var auk þess einn fárra þingmanna sem börðust gegn því að sett yrði þak á greiðslur til foreldra í fæðingarorlofi," sagði hún. MYNDATEXTI: Guðrún Inga Ingólfsdóttir afhendir Pétri Blöndal bikar eftir að hann var útnefndur "tík ársins".

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar