Jóhannes Haukur Leikari

Jóhannes Haukur Leikari

Kaupa Í körfu

Hippastemningin hefur verið í algleymingi í Austurbæ í allt sumar þar sem sýningar á söngleiknum Hárinu standa nú yfir. Í tilefni Menningarnætur ætla aðstandendur sýningarinnar svo að standa fyrir miðnætursýningu á Hárinu í kvöld. Jóhannes Haukur Jóhannesson er einn leikendanna í sýningunni. Hann fer með hlutverk Claude, sveitastráks sem kemur til borgarinnar eftir að hann er kvaddur til herþjónustu. Hann kemst í kynni við skrautlegan hóp hippa og fjallar söngleikurinn meðal annars um samskipti þeirra og vináttu. Jóhannes Haukur er nemandi í leiklistardeild Listaháskólans og útskrifast hann þaðan næsta vor.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar